Fara í aðalefni

Umhverfis Ísland

Op­inn fund­ur fyr­ir sveit­ar­fé­lög um vott­an­ir bygg­inga og græna hvata

Þann 19. júní næstkomandi mun Umhverfisstofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga standa að opnum fundi fyrir öll sveitarfélög landsins með það að markmiði að fræða um vottanir bygginga og þær grænu fjármögnunarleiðir sem í boði eru.

Fundurinn er hluti að tveimur aðgerðum 5.2.6 Fræðsla til sveitarfélaga um vottanir og 6.2 Efla umræður og fræðslu á samstarfsvettvangi sveitarfélaga um græna fjármögnunarmöguleika sveitarfélaga og hagræna hvata sem þau geta boðið upp á fyrir vistvæna mannvirkjagerð sem finna má í vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030 sem gefinn var út af Byggjum grænni framtíð sem er samstarfsverkefni stjórnvalda og hagaðila byggingariðnaðarins um vistvænni mannvirkjagerð en það á meðal annars rætur sínar að rekja til aðgerðar C.3 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum.

Byggingargeirinn losar um 30-40% af gróðurhúsalofttegundum á heimsmælikvarða og bera sveitarfélög landsins mikla ábyrgð þegar kemur að byggingarframkvæmdum bæði sem eigendur bygginga en ekki síður á skipulagsstigi og með úthlutun lóða. Við hvetjum því sveitarfélög landsins til að taka sér tíma í að hlusta á þennan viðburð og kynna sér þær lausnir sem í boði eru.

Á fundinum munu sérfræðingar fjalla um mismunandi vottunarkerfi, reynslu sveitarfélaga, grænar fjármagnanir og fleira.

Fundurinn verður haldinn á Teams milli klukkan 10:30 og 12:00 þann 19. júní næstkomandi.