Stafræn vegferð

Opið fyr­ir til­nefn­ing­ar til Ný­sköp­un­ar­verð­launa hins op­in­bera 2026

2. mars 2026

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026. Verðlaunin, sem veitt eru af Fjársýslunni og Sambandi íslenskra sveitarfélaga, verða afhent við hátíðlega athöfn á Nýsköpunardegi hins opinbera 6. maí nk.

Nýsköpunarverðlaun hins opinbera eru veitt til opinberra aðila sem hafa skarað fram úr í framþróun og umbreytingu á opinberri starfsemi og þjónustu. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á verkefnum og einstaklingum sem hafa innleitt nýjar lausnir, breytt verklagi eða nýtt innkaup og aðrar aðferðir markvisst til að bæta þjónustu og auka hagkvæmni í þágu samfélagsins. Öllum er frjálst að senda inn tilnefningar.

Hefð er fyrir því að verðlaunahafar fyrra árs, ásamt fulltrúum Fjársýslunnar og fjármála- og efnahagsráðuneytisins skipi sæti í dómnefndinni.

Dómnefnd verðlaunanna í ár skipa:

  • Benedikt Geir Jóhannesson, Skatturinn
  • Guðlaug Dröfn Þórhallsdóttir, Dómsmálaráðuneytið
  • Ingvar Högni Ragnarsson, Hafnarfjarðarbær
  • Kristín Þórdís Ragnarsdóttir, Reykjavíkurborg
  • Íris Huld Christersdóttir, Fjármála- og efnahagsráðuneytið
  • Ingþór Karl Eiríksson, formaður dómnefndar, Fjársýslan

Senda tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026

Nánari upplýsingar um Nýsköpunarverðlaun hins opinbera og verðlaunahafa fyrri ára