Ný stöðu­skýrsla um að­gerð­ir vegna of­beld­is með­al barna og gegn börn­um

24. febrúar 2026

Ný stöðuskýrsla aðgerðahóps stjórnvalda um aðgerðir vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum hefur verið birt. Skýrslan sýnir jákvæða þróun á ýmsum sviðum, samhliða því að nýjar áskoranir eru að koma skýrar fram. 

Samkvæmt niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2025, gögnum lögreglu og barnaverndar hefur hlutfall nemenda sem segjast hafa komið með hníf í skóla lækkað úr 3% í 1% í 8. bekk milli áranna 2024 og 2025. Á sama tíma líður fleiri börnum vel í skóla og fleiri segjast hafa traustan fullorðinn til að leita til. Einnig hefur dregið úr kynferðisofbeldi og heimilisofbeldi gegn börnum milli ára og biðlistar eftir meðferðarúrræðum hafa styst verulega.

Áskoranir eru þó áfram til staðar. Einelti hefur aukist í 6. bekk og líkamsárásum hefur fjölgað meðal yngstu barnanna, sérstaklega drengja. Þá er stafrænt ofbeldi og netöfgahópar vaxandi áhyggjuefni sem kallar á markvissari fræðslu og að lagarammi haldi í við hraðar tæknibreytingar.

Stöðuskýrslan dregur fram mikilvægi samstillts átaks, skýrra verkferla og áframhaldandi eftirfylgni með aðgerðaáætluninni 2025–2026, sem fylgt er eftir með reglubundnum mælingum og stöðumati á þriggja mánaða fresti. Til að styðja við þessa jákvæðu þróun er lykilatriði að sveitarfélögin vinni áfram saman að markvissum forvörnum, samræmdum verkferlum og snemmtækum stuðningi við börn og fjölskyldur. 

Skýrsluna má finna hér.