Fara í aðalefni

Fjármál

Nor­ræn­ar hag­deild­ir fund­uðu á Ís­landi

1. september 2026

Fulltrúar hagdeilda systursamtaka Sambandsins á Norðurlöndum komu saman á Íslandi í síðustu viku á árlegum samstarfsfundi sínum.

Markmið fundarins var að efla samstarf, miðla þekkingu og læra hvert af öðru um þau viðfangsefni sem sveitarfélög á Norðurlöndum standa frammi fyrir á komandi árum.  

Heimsóknin hófst í Grindavík þar sem þátttakendur fengu tækifæri til að kynna sér aðstæður í bænum og áhrif náttúruhamfara á starfsemi sveitarfélagsins. Að því loknu hélt hópurinn að Hótel Geysi, þar sem hann dvaldi í þrjár nætur og tók þátt í fjölbreyttri dagskrá, meðal annars heimsókn í Hrunamannahrepp þar sem sveitarstjórinn Aldís Hafsteinsdóttir tók vel á móti hópnum.  

Hópurinn fór í heimsókn til Grindarvíkur

Á fundinum var fjallað um ýmsar af stærstu áskorunum norrænna sveitarfélaga. Hvert land leiddi umræður um þau málefni sem þar eru talin brýnust og miðlaði reynslu sinni til annarra þátttakenda. Sambandið leiddi umræðu um endurnýjun kjörinna fulltrúa á sveitarstjórnarstiginu og mikilvægi þess að efla skilning á hlutverki sveitarfélaga í samfélaginu. Aðrar umræður sneru meðal annars að áhrifum breyttrar aldurssamsetningar íbúa og aukningu ungmenna í velferðarþjónustu og sérskólum, fjármögnun innviða og þarfir þess að setja fram langtíma fjárfestingaáætlanir, atvinnuþátttöku og breytingar varðandi hæfni og þekkingu starfsmanna auk nýtingu gagna og gervigreindar til að styðja við stefnumótun og þjónustu sveitarfélaga.  

Fundurinn staðfesti mikilvægi norræns samstarfs sveitarfélaga. Þrátt fyrir ólíkar aðstæður eiga sveitarfélög á Norðurlöndum við margar sameiginlegar áskoranir að etja og því skiptir miklu máli að deila þekkingu, reynslu og hugmyndum um lausnir sem geta nýst víðar en innan landamæra hvers ríkis.