Námsleyfi grunnskólakennara og skólastjórnenda skólaárið 2025–2026

Námsleyfasjóður hefur opnað fyrir umsóknir um námsleyfi grunnskólakennara og stjórnenda grunnskóla skólaárið 2025–2026.

Umsækjendum er gert að skila inn umsóknum á rafrænu formi á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til 10. október 2024 kl. 15:00.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Námsleyfasjóðs.