Fara í aðalefni

Styrkir

Nám­skeið í skrif­um á LIFE styrk­umsókn­um á Ak­ur­eyri og Eg­ils­stöð­um

9. september 2026

Landstengiliðir LIFE áætlunarinnar hjá Rannís leggja land undir fót og heimsækja Akureyri og Egilsstaði í október.

Tilgangur ferðarinnar er að bjóða upp á námskeið fyrir umsækjendur sem hyggjast sækja um í LIFE árið 2027, sem og að bjóða upp á fundi með mögulegum umsækjendum. Á námskeiðinu verður farið yfir umsóknarferlið og ýmis atriði sem ber að hafa í huga við umsóknarskrif og gerð fjárhagsáætlana.

LIFE er umhverfis- og loftslagsáætlun ESB og markmið hennar eru að: 

  • vernda náttúru Evrópu með því að hægja á og snúa við hnignun líffræðilegs fjölbreytileika. LIFE áætlunin fjármagnar verkefni sem takast á við umhverfis- og loftslagsbreytingar,
  • flýta fyrir orkuskiptum með aukinni útbreiðslu orkunýtni og endurnýjanlegri orku,
  • draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, auka viðnámsþol vegna loftslagsbreytinga og auka meðvitund um að draga úr loftslagsbreytingum,
  • leggja til hringrásarhagkerfisins með nýrri tækni og lausnum,
  • vernda, endurheimta og bæta umhverfið, svo sem vatns-, loft- og hljóðgæði og auka í kjölfarið lífsgæði fólks.

LIFE verkefni eiga að þróa, sannreyna og skala upp nýstárlegar lausnir á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Verkefnin ættu auk þess að vera hvati að því að vel heppnuðum lausnum sé beitt víðar og í stærri mæli en áður.