Í dag, miðvikudaginn 11. júní 2025, opnar formlega myndasafn Sambands íslenskra sveitarfélaga. Í gegnum tíðina hefur Sambandið birt gríðarlegt magn ljósmynda í tímaritinu Sveitarstjórnarmálum, en tímaritið kom fyrst út 1. september 1941 og er því fjórum árum eldra en Sambandið.
Síðustu vikur hefur verið unnið að því að koma broti af myndasafni Sambandsins inn á gagnagrunn sem vistaður er hjá fyrirtækinu DataDwell þar sem einfalt verður að halda utan um safnið, merkja það með þeim og því sem á myndunum er og setja inn margs konar merkingar, s.s. ártal, tilefni og ótalmargt fleira.
Nú þegar hafa verið settar inn næstum 2.000 myndir flestar frá síðustu árum en einnig frá sjöunda og áttunda áratugnum.
Það er von okkar að þessi ljósmynda- og minningabanki verði sveitarstjórnarfólki og landsmönnum öllum góð afþreying og jafnframt að við náum með þessu að sýna hversu fjölbreytt verkefni það eru sem Sambandið hefur fengist við í gegnum tíðina. Við búum yfir áttræðri sögu og þúsund minningum.
Við bjóðum landsmönnum að fletta í gegnum myndirnar og senda okkur ábendingar um það sem betur mætti fara og biðjum ykkur endilega um að senda okkur ábendingar um nöfn og staði í gegnum myndavefinn sjálfan.
Slóðin er http://myndasafn.samband.is.