Velferð

Mál­þing um stefnu í mál­efn­um fatl­aðs fólks til fram­tíð­ar

7. janúar 2026

Föstudaginn 23. janúar mun Sambandið standa fyrir málþingi um stefnu í málefnum fatlaðs fólks til framtíðar. Fundurinn sem hefst kl. 09:00 fer fram á Fosshótel Reykjavík, Þórunnartúni 1 í fundarsal sem heitir Gullfoss.

Markmið málþingsins er að skapa vettvang fyrir opið samtal um framtíðarsýn, stefnumótun og þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í þjónustu og réttindum fatlaðs fólks. Á málþinginu verður opið samtal um mótun á málaflokknum til framtíðar, vettvangur þar sem ólík sjónarmið á sveitarstjórnarstiginu, reynsla og hugmyndir mætast – með það að leiðarljósi að móta skýra og framsækna stefnu sem tryggir réttindi og góða þjónustu fyrir fatlað fólk. Málþingið er eingöngu fyrir sveitarstjórnarfólk og starfsfólk sveitarfélaga.

Málþingið fer fram á Fosshótel við Þórunnartún 1 í Reykjavík. Frítt er inn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku. Upptaka frá málþinginu.