Umhverfis Ísland

Mál­þing um að­lög­un sveit­ar­fé­laga að lofts­lags­breyt­ing­um

30. janúar 2026

Málþing um aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga verður haldið þann 12. febrúar kl. 13 í Hofi, Akureyri.

Yfirskrift málþingsins er

Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga
Frá áskorunum til aðgerða: leiðarvísir, verkfæri og reynsla sveitarfélaga.

Á málþinginu verða áskoranir sveitarfélaga og tækifæri í málaflokknum í forgrunni og þar verða m.a. kynnt fyrsta útgáfa leiðarvísis fyrir sveitarfélög um mótun aðlögunaraðgerða sem byggður er á tilraunaverkefnum í fimm sveitarfélögum, auk nýrrar aðlögunaráætlunar Íslands, Loftslagsatlas Íslands og fleiri verkfæra og leiðbeininga sem styðja sveitarfélög í aðlögunarvinnu.

Skipuleggjendur viðburðarins eru Byggðastofnun, ásamt Veðurstofu Íslands, Skipulagsstofnun og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu.

Sambandið hvetur sveitarfélög til að mæta í Hof á Akureyri eða horfa á streymið.

Frekari upplýsingar um dagskrá og skráningu má finna hér.