Fræðslumál
Gervigreind og djúpfölsun
2. nóvember 2026
Á vefnum Stopp ofbeldi! er að finna hugmyndir að fræðsluefni fyrir börn, foreldra og starfsfólk um kynbundið ofbeldi og áreiti. Í nýjasta myndbandinu er fjallað um stafræna stjórnun í parasamböndum.

Stafræn stjórnun í parasamböndum
Stjórnun og eftirlit í parasamböndum ungs fólks fer mikið fram í gegnum símann.
Það gerir hana bæði auðveldari og ósýnilegri en áður. Í dag er hægt fylgjast með einhverjum allan sólarhringinn án þess að nokkur taki eftir því.
Horfðu á myndbandið á vefnum Stopp ofbeldi.