Fræðslumál
Endurmenntunarsjóður grunnskóla hefur opnað fyrir umsóknir
30. janúar 2026
Stjórn Námsleyfasjóðs auglýsir eftir umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla vegna endurmenntunarverkefna skólaárið 2026-2027. Umsóknarfrestur er til 4. mars 2026 kl. 14:00.

Þeir sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir félagsmenn í Félagi grunnskólakennara (FG) og Skólastjórafélagi Íslands (SÍ) geta sótt um framlög úr sjóðnum.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, umsóknir sendar á öðru formi verða ekki teknar gildar.
Þeir sem ekki hafa aðgang að rafrænum skilríkjum geta sótt um notendanafn og lykilorð með tölvupósti á netfangið samband@samband.is áður en umsókn er fyllt út. Þeir sem hafa notað notendanafn og lykilorð sl. ár þurfa að endurnýja þau með því að senda beiðni á netfangið samband@samband.is.