Fræðslumál

Álfa­steinn í Hafn­ar­firði hlýt­ur Orð­spor­ið 2026

9. febrúar 2026

Leikskólinn Álfasteinn í Hafnarfirði hlaut Orðsporið 2026, hvatningarverðlaun leikskólans, fyrir fagmennsku, ígrundun og metnaðarfullt þróunarstarf sem byggt er á fræðilegum grunni og samvinnu.

Frá afhendingu Orðsporsins
Frá afhendingu Orðsporsins

Sigurður Sigurjónsson, formaður Félags stjórnenda leikskóla, afhenti Ingu Líndal, leikskólastjóra Álfasteins, viðurkenninguna við hátíðlega athöfn í leikskólanum, að viðstöddum kennurum og stjórnendum skólans.

Í umsögn valnefndar Orðsporsins segir að með markvissri stefnu skólans um að hvetja starfsfólk til náms í leikskólakennarafræðum hafi skapast „sterkt faglegt umhverfi þar sem rannsóknir, starfendarannsóknir og sameiginleg ábyrgð á gæðum skólastarfs eru leiðarljós“.

Kennararnir Helga Guðmundsdóttir og Hjördís Jónsdóttir hafa að mati valnefndar sýnt faglegt hugrekki með starfendarannsóknum; þær hafa rýnt, með kerfisbundnum hætti, í eigið starf, spurt gagnrýninna spurninga og þróað nýjar leiðir í skólastarfinu, meðal annars er kemur að aðferðum sem geta haft áhrif á tengslamyndun og samskipti við foreldra.

„Starfendarannsóknirnar hafa leitt til raunverulegra breytinga á starfsháttum. Innleiddir hafa verið tengslahringir og samskiptahringir þar sem kennarar meta tengsl sín við hvert barn fjórum sinnum á ári. Þessi kerfisbundna nálgun tryggir að ekkert barn verði jaðarsett og að gripið sé tímanlega til aðgerða ef tengsl eru veik. Með þessu hefur tekist að styrkja öryggi barna, fagvitund kennara og samvinnu innan teymanna,“ segir í umsögninni.

Þá kemur fram í umsögn valnefndar að kannanir meðal foreldra sýni mælanlega aukningu á ánægju með aðlögunarferli skólans, eftir að breytingarnar voru innleiddar. Foreldrasamtöl, sem fara að jafnaði fram sex til átta vikum eftir aðlögun, hafa orðið að mikilvægu faglegu rými fyrir endurgjöf og samræður – sem eflir traust foreldra og forráðamanna til kennara og starfsfólks.

„Starf skólans sýnir hvernig markviss þróun, byggð á fræðilegum grunni og samvinnu, getur skapað varanlegan ávinning fyrir börn, foreldra og samfélagið í heild,“ segir í lok umsagnar valnefndar.