Fara í aðalefni

Kjaramál

Vinna við virð­is­mat kenn­ara held­ur áfram

31. október 2026

Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga, samninganefnd ríkisins og Kennarasamband Íslands hafa samþykkt tillögu ríkissáttasemjara um framhald virðismats starfa kennara.

Samkvæmt tillögu ríkissáttasemjara verður vinnu við virðismatið haldið áfram til 15. mars 2027. Þá fara samningsaðilar yfir stöðu verkefnisins og taka ákvörðun um framhaldið.

Náist ekki samstaða á þeim tímapunkti um að virðismatsvegferðinni verði haldið áfram tekur við vinna forsendunefndar undir verkstjórn ríkissáttasemjara. Hlutverk hennar verður að leita leiða til að sætta ágreining aðila og skipuleggja áframhaldandi vinnu. Að þeirri vinnu lokinni verður samningsaðilum heimilt að segja upp samningum í samræmi við það ferli sem kveðið er á um í tillögunni.

Launahækkunum frestað meðan vinnan stendur yfir

Öllum umsömdum breytingum á kjarasamningum, þar á meðal framkvæmd launahækkana og launaþróunarauka, verður frestað á meðan framangreint ferli stendur yfir. Þær koma því ekki til framkvæmda fyrr en samkomulag liggur fyrir um áframhaldandi gildi kjarasamningsins. Verði samningum sagt upp losna þeir 1. október 2027.