Stafræn vegferð

Staf­rænu ráð­stefn­unni frestað

4. júní 2025

Okkur þykir leitt að tilkynna að fresta þarf Stafrænu ráðstefnunni, sem fyrirhuguð var 10.júní næstkomandi, vegna ófullnægjandi þátttöku.

Ráðstefnan hefur undanfarin ár verið vettvangur fróðlegra erinda, innblásturs og umræðna um stafræna þróun innan sveitarfélaga. Við gerðum okkar besta til að dagskráin í ár yrði fjölbreytt og áhugaverð – þar sem fjalla átti m.a. um ábata stafrænna lausna, hlutverk stafræns leiðtoga, samstarf sveitarfélaga og áhrif gervigreindar á samfélagið.

Við þökkum öllum sem höfðu sýnt ráðstefnunni áhuga og munum skoða möguleika á að halda viðburðinn síðar á árinu og munum tilkynna nýja dagsetningu um leið og hún liggur fyrir.
Okkur þykir afar leitt að svona skuli fara og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Um leið og við þökkum fyrir skilninginn vonumst við til að sjá ykkur á næsta viðburði stafrænna sveitarfélaga.