Umhverfis Ísland
Meðhöndlun lífúrgangs á Íslandi - útgefin skýrsla
1. september 2026
Í gær, mánudaginn 31. ágúst, fór fram kynningarfundur á nýrri skýrslu um meðhöndlun lífúrgangs á Íslandi. Skýrslan var unnin fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið af Stefáni Gíslasyni hjá Umhverfisráðgjöf Íslands. Þátttaka á fundinum var afar góð og augljóst að viðfangsefnið er sveitarfélögunum hugleikið.
Meginniðurstöður skýrslunnar eru þær að áætlað magn matarúrgangs sem fellur til á landinu á ári er um 43.766 tonn en aðeins um 20.320 tonnum er sérsafnað og fara í vinnslu. Vísbendingar eru um að gera mætti betur í sérsöfnun lífúrgangs frá lögaðilum og bæta úr söfnun og meðhöndlun á garðaúrgangi.
Núverandi afkastageta til að meðhöndla lífúrgang á landsvísu er um 33.379 tonn en ef litið er til afkastaþarfar árið 2035 þyrfti getan að aukast um 18.579 tonn, eða í heildina vera 51.958 tonn á ári. Skýrslan varpar ljósi á það að nauðsynleg uppbygging innviða er misjöfn eftir landshlutum en líklegt sé að svæðisbundin uppbygging innviða sé fýsilegust. Lítið geymsluþol lífúrgangs takmarkar í þessu samhengi kosti þess að vinna hann miðlægt auk þess sem flutningskostnaður getur verið hár þegar keyrt er með úrganginn landshluta á milli.
Skýrsluna í heild sinni má nálgast hér.