Samtök orkusveitarfélaga
Óskað eftir framboðum til stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
12. ágúst 2026
Kjörnefnd Samtaka orkusveitarfélaga óskar eftir framboðum til stjórnar samtakanna fyrir starfsárið 2026–2028 í tengslum við aðalfund samtakanna sem fram fer föstudaginn 21. ágúst 2026 kl. 13:00 í Borgartúni 30.

Á aðalfundinum verður kosinn formaður stjórnar, sex aðalmenn í stjórn og fimm varamenn til tveggja ára. Við skipan stjórnar er lögð áhersla á að hún endurspegli sem best fjölbreytni og heildarhagsmuni þeirra sveitarfélaga sem eiga aðild að Samtökum orkusveitarfélaga. Jafnframt skal leitast við að tryggja kynjajafnvægi bæði í aðalstjórn og varastjórn.
Kjörgengir eru kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum og starfsmenn aðildarsveitarfélaga samtakanna.
Samtök orkusveitarfélaga eru sameiginlegur vettvangur sveitarfélaga sem hafa hagsmuna að gæta vegna orkuvinnslu, virkjunarmannvirkja, vatnsmiðlunar og annarrar nýtingar orkuauðlinda. Á undanförnum árum hafa samtökin meðal annars unnið markvisst að því að tryggja sanngjarnari tekjur til nærsamfélaga vegna orkuvinnslu, tekið þátt í mótun orkulöggjafar og verið öflugur málsvari sveitarfélaga í orkumálum.
Kjörnefnd hvetur áhugasama til að gefa kost á sér til starfa. Framboð skulu berast eigi síðar en 13. ágúst 2026 á netfangið bryndis@samband.is. Í framboði þarf að koma fram:
- nafn frambjóðanda,
- sveitarfélag,
- starf eða hlutverk innan sveitarfélags,
- hvort framboðið sé til formanns, aðalstjórnar og/eða varastjórnar.
Kjörnefnd leggur fram tillögu að stjórn þremur dögum fyrir aðalfund. Heimilt er öllum kjörgengum að bjóða sig fram og komi fram önnur framboð en tillaga kjörnefndar verður kosið á aðalfundi.
Við samsetningu tillögu sinnar mun kjörnefnd meðal annars horfa til landfræðilegrar dreifingar, fjölbreytni orkugjafa, mismunandi stöðu orkuverkefna og heildarhagsmuna aðildarsveitarfélaga, þannig að stjórnin endurspegli sem best breidd og fjölbreytni samtakanna.
Kjörnefnd Samtaka orkusveitarfélaga