Fræðslumál
Forgangsatriði Sprotasjóðs fyrir árið 2026
15. október 2025
Sprotasjóður leik-, grunn- og framhaldsskóla hefur birt forgangsatriði sjóðsins fyrir úthlutun ársins 2026.

Forgangsatriði sjóðsins vegna úthlutunar ársins 2026 verða:
- Grunnþáttur menntunar: Lýðræði og mannréttindi.
- Nýjar leiðir í kennsluaðferðum og námsmati með sjálfstæði og virkni nemenda að markmiði.
Núna er góður tíma til að byrja að móta verkefnhugmyndir og gefa þeim svigrúm til að þróast.
Sjá nánari upplýsingar á vef Sprotasjóðs .
Sjá einnig til fróðleiks upplýsingar um fyrri úthlutanir á gagnatorgi Rannís . Með því að velja númer úthlutunar fremst í töflu fást nánari upplýsingar um verkefnið.