Umhverfis Ísland
Er efnamengun í vatni vandamál í þínu sveitarfélagi?
12. febrúar 2025
Tækifæri fyrir sveitarfélög! Auglýst er eftir umsóknum frá sveitarfélögum sem hafa áhuga á að reyna nýstárlegar lausnir við að mæla ástand vatns og vinna að úrbótum. Þau sveitarfélög sem valin verða fá hvert um sig u.þ.b. 15 milljónir króna (100.000 Evrur) og sérfræðiráðgjöf og handleiðslu við að auka vatnsgæði á sínu landsvæði.

Umsóknarfrestur til 3. apríl 2025
Opnað var fyrir umsóknir í janúar en hægt er að sækja um til 3. apríl.
Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu verkefnisins og hægt er að hafa samband við Kolbrúnu Bjargmundsdóttur, landstengilið og sérfræðing hjá Rannís (kolbrun.bjargmundsdottir@rannis.is) vakni frekari spurningar.