Umhverfis Ísland

Aug­lýst eft­ir um­sókn­um um styrki til frá­veitu­fram­kvæmda

13. janúar 2026

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur opnað fyrir umsóknir sveitarfélaga um styrki til fráveituframkvæmda, en í fjárlögum 2026 er gert ráð fyrir að 378 m.kr. verði varið til þess að styrkja sveitarfélög vegna fráveituframkvæmda. Umsóknarfrestur vegna styrkjanna er til og með 9. febrúar 2026.

Mynd af vef Stjórnarráðsins (Heidi Orava /norden.org)
Mynd af vef Stjórnarráðsins (Heidi Orava /norden.org)

Skilyrði fyrir styrkveitingu er að fráveituframkvæmdin sé áfangi í heildarlausn á fráveitumálum sveitarfélags í samræmi við áætlun sem hlotið hefur samþykki umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.

Styrkhæfar fráveituframkvæmdir eru framkvæmdir við safnkerfi fráveitna, hreinsivirki, dælustöðvar og útrásir. Einnig teljast styrkhæfar framkvæmdir við hreinsun ofanvatns, svo sem til að draga úr mengun af völdum örplasts en rannsóknir hafa sýnt að megnið af örplastmengun berst til sjávar með ofanvatni. Meðal skilyrða fyrir að fráveituframkvæmd teljist styrkhæf er að kostnaður hafi fallið til eftir 1. janúar 2020.

Kostnaður við útboð, fjármagns- og lántökukostnaður og kaup á löndum og lóðum vegna framkvæmda í fráveitumálum teljast ekki styrkhæf. Sama gildir um hefðbundið viðhald og endurbætur á eldri fráveitukerfum. Þó eru endurbætur á eldri kerfum styrkhæfar, ef tilgangurinn með endurbótunum er að kerfin standist gildandi kröfur laga og reglugerða.

Styrkir

Styrkfjárhæð nemur að jafnaði 20% af staðfestum heildarkostnaði styrkhæfrar fráveituframkvæmdar. Styrkfjárhæð skal þó aldrei verða hærri en 30% af heildarkostnaði og að jafnaði ekki lægri en 15%.

Umsóknir á eyðublaðavef Stjórnarráðsins

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

Umsækjendur skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og finna þar viðeigandi eyðublað undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.

Umsóknum skal fylgja verk- og tímaáætlun fyrir þá áfanga framkvæmdar sem sótt er um styrk fyrir og uppfærðar upplýsingar um framkvæmdina og kostnað frá samþykktri áætlun eftir því sem við á, auk afrita af greiddum reikningum eftir atvikum.

Miðað er við að greiðsla styrkja fari fram um mitt ár 2026 og í janúar 2027 - og þurfa gögn að berast annars vegar fyrir lok maí og hins vegar fyrir 15. janúar 2027.

Fyrirvari er um að greiðslur styrkja verði eftir því sem fjárheimildir leyfa.

Styrkir verða einungis greiddir út á grundvelli þegar greiddra reikninga.

Upplýsingar um útgreiðslu styrkja, útgreiðsluáætlun og útgreiðsluhlutfall verða birtar á vef ráðuneytisins.

Umsóknir sem ekki uppfylla skilyrði auglýsingar og úthlutunarskilmála samkvæmt reglugerð um úthlutun styrkja til fráveitna sveitarfélaga, nr. 1424/2020, verða ekki teknar til umfjöllunar.

Nánari upplýsingar má nálgast hjá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu: urn@urn.is