Önnur Ráðhúsfræðsla kjörtímabilsins fer fram þriðjudaginn 9. júní kl. 12:00.
Fundurinn fer fram í gegnum Zoom vebinar.
Að þessu sinni mun Bryndís Gunnlaugsdóttir, lögfræðingur á Þjónustusviði Sambandsins, fjalla um:
- Hlutverk sveitarfélaga og sveitarstjórnarfólks
- Samþykkt um stjórn og fundarsköp
- Vinnuna í sveitarstjórn
- Sumarleyfi sveitarstjórnar
Nauðsynlegt er að skrá sig á Ráðhúsfræðsluna og verður tengill sendur út til þátttakenda að morgni fundardags.