Fara í aðalefni

Stafræn vegferð

Vef­kaffi - WorkPo­int sem hluti af sta­f­rænni umbreyt­ingu sveit­ar­fé­lags

Hvernig breytir nýtt kerfi vinnubrögðum í sveitarfélagi? Innleiðing WorkPoint hjá Akraneskaupstað er hluti af stærri vegferð í stafrænni umbreytingu og felur því í sér meira en innleiðingu á nýrri tækni.

Dagsetning: 21. október 2026

Staðsetning: Stafrænt

Tími: Kl. 09:00

Skrá á viðburð

Harpa Sól Másdóttir, upplýsingastjóri Akraneskaupstaðar, segir frá reynslu sinni af uppbyggingu nýs vinnuumhverfis fyrir mál og skjöl í WorkPoint 365, áskorunum, þeim tækifærum sem fylgja breyttum vinnubrögðum og lærdómnum sem hefur orðið til á leiðinni. 

Sjáumst á Vefkaffinu, sem haldið verður á Teams þann 21. október næstkomandi kl. 9:00.

Vefkaffi eru stafrænar spjallstofur sem haldnar eru mánaðarlega yfir vetrarmánuðina, þar sem kynnt eru hin ýmsu verkefni tengd stafrænni umbreytingu sveitarfélaganna. Vefkaffið verður tekið upp og birt hér að vefkaffinu loknu.