Grunnþekking á fjármálum sveitarfélaga á aðgengilegan og hagnýtan hátt. Námskeið sem hentar bæði nýjum og reynslumiklum kjörnum fulltrúum. Áhersla verður á fjárhagsáætlanir, viðauka og ársreikninga sveitarfélaga. Fyrirlesari er Þórdís Sveinsdóttir, sviðsstjóri Þróunarsviðs Sambandsins. Nauðsynlegt er að skrá sig á tenglinum hér að neðan. Tengill á Zoom verður sendur til skráðra þátttakenda að morgni fræðsludags.