Fjórðungsþing að hausti
69. Fjórðungsþing Vestfirðinga verður haldið þann 18. og 19. október nk. að Laugarhóli í Bjarnarfirði.
Dagsetning: 18. október 2024
Staðsetning: Laugarhóll í Bjarnarfirði
Tími: Kl. 09:00

Viðfangsefni þingsins er þríþætt. Vinnustofa um framtíðarsýn Vestfjarða sem lið í gerð vinnslutillögu Svæðisskipulags Vestfjarða, kynning á nýrri Sóknaráætlun Vestfjarða 2025-2029 og síðan hefðbundin þingsstörf samkvæmt 11. gr samþykkta og afgreiðsla ályktana.