Fara í aðalefni

Samtök orkusveitarfélaga

Að­al­fund­ur Sam­taka orku­sveit­ar­fé­laga og Orkufund­ur 2026

Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga og Orkufundur fer fram í Borgartúni 30 föstudaginn 21. ágúst nk. Aðalfundurinn hefst kl. 13:00 en í framhaldi af honum fer efna samtökin til Orkufundar sem áformað er að hefjist kl. 14:00. Dagskrá fundarins má finna hér fyrir neðan.

21. ágúst 2026

Borgartún 30

Kl. 13:00

Skrá á viðburð

Dagskrá:

  1. Inntaka nýrra aðildarsveitarfélaga
  2. Skýrsla stjórnar,
  3. Ársreikningur samtakanna,
  4. Fjárhagsáætlun samtakanna
  5. Ákvörðun um árgjald og þóknun stjórnar,
  6. Breytingar á samþykktum,
  7. Kosning formanns stjórnar, aðra stjórnarmenn og varastjórn til tveggja ára,
  8. Kosning tveggja skoðunarmanna
  9. Kosning kjörnefndar (þrír aðalmenn og þrír varamenn)
  10. Mál sem stjórn samtakanna, einstakir fulltrúar eða sveitarstjórnir óska að tekin verði fyrir.

Dagskráin er kynnt með fyrirvara um breytingar.

Hér má finna skjöl sem fylgdu með aðalfundarboði:

Vakin er athygli á því að einn fulltrúi þarf í það minnsta að mæta frá hverju aðildarsveitarfélagi. Einnig eru aðildarsveitarfélög vinsamlegast beðin um að skrá alla fulltrúa ef fleiri en einn mæta fyrir hönd viðkomandi sveitarfélags. Merkja þarf við hver fer með atkvæðisrétt.

Kjörnefnd óskar eftir framboðum til formanns stjórnar og til stjórnar- og varastjórnar samtakanna sbr. meðfylgjandi erindi frá kjörnefnd. Framboð skulu berast eigi síðar en 13. ágúst nk. á netfangið bryndis@samband.is

Í framboði þarf að koma fram nafn, sveitarfélag, starf eða hlutverk innan sveitarfélags og hvort framboðið er til formanns, aðalstjórnar og/eða varastjórnar.