Réttindi starfsfólks í sorgarleyfi.
Sorgarleyfi er leyfi frá launuðum störfum sem stofnast við missi barns yngra en 18 ára.
Sorgarleyfi og sorgarstyrkur er greitt úr ríkissjóði í gegnum Vinnumálastofnun og um þau gilda lög um sorgarleyfi sem tóku gildi 1. janúar 2023.
Réttur til sorgarleyfis myndast þegar foreldri hefur verið í samfelldu starfi í að minnsta kosti 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði. Foreldrar í minna en 25% starfshlutfalli geta átt tilkall til sorgarstyrks en ekki sorgarleyfis.
Hvort foreldri um sig á sjálfstæðan rétt til sorgarleyfis í allt að sex mánuði frá þeim degi sem barn andast. Sorgarleyfi er einnig veitt vegna andvana fæðingar eftir 22 vikna meðgöngu í allt að þrjá mánuði og fósturláts eftir 18 vikna meðgöngu í allt að tvo mánuði. Réttur vegna sorgarleyfis fellur niður 24 mánuðum eftir barnsmissi, andvana fæðingu eða fósturlát.