Fara í aðalefni

Reynsla af þátt­töku

Stærstu áætlanirnar sem tengjast sveitarfélögum eru Erasmus+ og LIFE. Tugir þúsunda Íslendinga hafa notið góðs af Erasmus+ styrkjum í gegnum tíðina og hafa sveitarfélög geta styrkt verulega við sín mennta- og æskulýðsmál í gegnum þá þátttöku. Nú þegar er búið að staðfesta 39M€ i styrki til Íslands (5,5 Milljarðar ÍSK) og beðið er svara vegna verkefna upp á a.m.k. 26M€ (3,7 Milljarðar ÍSK). Mörg sveitarfélög á Íslandi eru beinir styrkþegar í þessum verkefnum en öll geta þau notið góðs af þátttöku sveitarfélaga og Sambandsins þar sem mikil þekking og reynsla verður til í þessum verkefnum sem verður deilt með öllum sem áhuga hafa á. Viðfangsefnin eru afar fjölberytt og spanna m.a. vatna- og fráveitumál í gegnum Icewater verkefnið (8 sveitarfélög taka þátt),  orkuskiptin í gegnum RECET verkefnið og European City Facility, endurheimt votlendis í gegnum Mýralíf verkefnið, hringrás í landeldi og búið er að sækja um vegna verkefna sem snúast um innleiðingu annars vegar á hringrásarhagkerfi á Íslandi og aðlögun að loftslagsbreytingum.

Hlutverk Sambandsins í ESB verkefnum, hvort sem það er styrkþegi eða stuðningsaðili, er ætíð að tryggja að allt sem lærist í verkefninum skili sér með aðgengilegum hætti til þeirra sveitarfélaga sem ekki hljóta styrki í gegnum þessi tilteknu verkefni svo þau geti sem flest, ef ekki öll, notið ávinningsins. Styrkir eru fyrst og fremst nýttir til að manna stöður sérfræðinga í vatnamálum, loftslagsmálum og úrgangsmálum, svo og til fræðslu til sveitarfélaga í sjóðasókn.