Fara í aðalefni

Leið­bein­ing­ar fyr­ir sveit­ar­fé­lög um með­ferð ágangs­fjár

Við gerð leiðbeininga þessara hefur verið horft til ákvæða stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 varðandi eignarrétt, laga um afréttarmálefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986, laga um búfjárhald nr. 38/2013, sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og túlkunar þeirra í áliti umboðsmanns Alþingis í máli nr. 11167/2021, áliti innviðaráðuneytis í máli IRN22050047 og dómi Landsréttar í máli 268/2020, með hliðsjón af girðingalögum nr. 135/2001, og lögum um skóga og skógrækt nr. 33/2019

Leiðbeiningar þessar skiptast í fimm kafla: Ábendingar um stjórnsýslu, málsmeðferð, ágangur fjár af afrétti í heimalönd, ágangur búfjár á milli heimalanda og forvarnir gegn ágangi fjár.  

Í kaflanum um ágang á milli heimalanda er fjallað um ágang þar sem vörsluskylda er fyrir hendi, ágangsfé sem vanrækt hefur verið að reka á afrétt og ágang þar sem lausaganga er heimil.  

Í leiðbeiningunum er gengið út frá því að orðið „ágangur“ merki beit í óþökk umráðaaðila viðkomandi lands, að „afréttur“ merki land utan byggðar sem nýtt er til sameiginlegrar sumarbeitar og er tilgreint í afréttaskrá og að „heimalönd“ séu ræktuð tún og garðar eða annað land í einkaeigu sem ekki er skilgreint sem afréttur í afréttaskrá.