Mánudaginn 23. mars kl. 12:00 verður haldin rafræn hádegisfræðsla undir yfirskriftinni Ráðhúsfræðslan. Að þessu sinni verður fjallað um Mannauðstorg Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Í Ráðhúsfræðslunni verður fjallað um það hvernig starfsfólk sveitarfélaga getur nýtt sér upplýsingarnar og efnið á Mannauðstorgi Sambandsins í daglegum störfum. Mannauðstorgið má skoða hér.
Námskeiðið fer fram á rafrænu formi og þurfa þátttakendur að skrá sig fyrir fram.
Hlekkur á fundinn verður sendur skráðum þátttakendum að morgni fundardags.
Þátttakendum verður einnig boðið að senda inn spurningar á meðan fræðslunni stendur.
Við hvetjum áhugasamt starfsfólk sveitarfélaga til að skrá sig og taka þátt.