Fara í aðalefni

Stuðn­ing­ur og leið­bein­ing­ar

Styrkir hafa marga kosti í för með sér en þeir eiga ekki alltaf við fyrir öll verkefni.  Styrkir ná yfirleitt ekki einir og sér yfir alla fjárfestingarþörf stærri innviðaverkefna. Skoða þarf vel hvaða sjóðir henta hverju verkefni þar sem stundum er farið fram á mótframlag og tilteknir kostnaðarliðir þykja ekki tækir hjá ákveðnum styrkveitendum eða sjóðum. Styrkir ná yfirleitt aðeins til skýrt afmarkaðar verkefna, og á það bæði við um umfang og tímaramma. Það er oftmikil samkeppni um styrki og því skiptir máli að geta lagt in samkeppnishæfa umsókn og slíkt tekur tíma. Styrkir geta þó haft marga kosti í för með sér, umfram að ekki þarf að greiða þá til baka, þar sem þeir geta t.d. náð yfir þann kostnað sem oft er nauðsynlegur en þykir ekki arðbær, svo sem hönnun og þróun ákveðinna þátta stærri verkefna og jafnvel ef á að prófa nýstárlegar lausnir í bland við sannreyndari. Sambland styrkja og lána getur þó oft verið það sem gerir framkvæmdir á stórum skala mögulegar. 

Það er afar ólíkt eftir gerð og upphæð styrkja hversu mikla vinnu þarf að leggja í umsóknarferli og því skiptir máli að kynna sér vel þær kröfur sem gerðar eru til hinna mismunandi umsókna og reyna þannig að verja tíma í umsóknavinnu í réttu hlutfalli við mögulegan ávinning.