Fara í aðalefni

Reiknivél

Kjósendur velja sveitarstjórn sem nýtir síðan umboð sitt til að kjósa í nefndir sveitarfélagsins á grundvelli sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Aðeins kjörnir sveitarstjórnarfulltrúar greiða atkvæði og leggja fram lista með kjörgengum frambjóðendum. Hver fulltrúi getur stutt einn lista fyrir hverja nefnd og ef óskað er fer fram leynileg hlutfallskosning (d'Hondt) sem tryggir rétt minnihlutans.

Við samsetningu lista og kosningu í nefndir þarf að gæta að eftirfarandi lykilatriðum:

  • Kjörgengi og hæfi: Fulltrúar þurfa almennt að hafa kosningarrétt í sveitarfélaginu. Starfsmenn sveitarfélagsins mega að jafnaði ekki sitja í stjórnum sem fara með málefni þeirra eigin vinnustaðar.
  • Kynjahlutföll: Sveitarstjórnarlög kveða á um kynjahlutföll í nefndum. Í 3 manna nefndum þarf a.m.k. einn af hvoru kyni og í 5 manna nefndum a.m.k. tveir. Tryggja ber jöfnuðinn með endurröðun á lista ef þörf krefur.
  • Útreikningur atkvæða (d'Hondt reglan): Við hlutfallskosningu er sætum úthlutað milli lista samkvæmt svokallaðri d'Hondt deilireglu. Þá er atkvæðafjölda hvers lista deilt með 1, 2, 3 o.s.frv. til að búa til útkomutölur og næsta lausa sæti í nefnd fellur alltaf í hlut þess lista sem á hæstu útkomutöluna hverju sinni. Ef tvær eða fleiri útkomutölur eru jafnháar þegar seinasta sæti er úthlutað skal varpa hlutkesti.
  • Sameiginlegir listar: Algengt er að meirihlutaflokkar kjósi saman til að tryggja sér meirihluta í nefndum. Fyrir minnihlutaflokka er oftast einnig hagstæðara að leggja fram sameiginlegan lista til að nýta atkvæði sín betur og hámarka fjölda fulltrúa. Til að auðvelda samstarfið tryggja lögin að flokkar geti gert bindandi samkomulag um varamenn, þannig að sæti haldist alltaf hjá réttum flokki innan bandalagsins forfallist aðalmaður.
  • Byggðarráð: Sérreglur gilda um byggðarráð, en þar geta einungis aðalmenn úr sveitarstjórn átt sæti.

Reiknivélin hér til hliðar aðstoðar sveitarstjórnarfólk við að reikna út úthlutun sæta, hvort sem stjórnmálaflokkar bjóða fram í sitthvoru lagi eða sameinast um lista. Ítrekað er að þegar kosið er í nefndir þá er það sveitarstjórnarfólk sem kýs. Atkvæðafjöldi er því í samræmi við fjölda fulltrúa í sveitarstjórn en ekki er miðað við fjölda atkvæði í sveitarstjórnarkosningum. Sem dæmi, ef það eru 9 einstaklingar í sveitarstjórn þá geta að hámarki verið 9 atkvæði.

Sambandið ber ekki ábyrgð á ákvörðunum eða niðurstöðum sem teknar eru á grundvelli reiknivélarinnar.

Fjöldi atkvæða/fulltrúa

  • Listi A
  • Listi B

Niðurstaða

Ýttu á „Reikna sæti“ til að sjá úthlutun sæta og hlutföll.