Norrænir styrkir
Nokkuð er um styrktarsjóði á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar (e. Nordic Council of Ministers) sem styrkja afmörkuð viðfangsefni með einum eða öðrum hætti eftir áherslum nefndarinnar og sjóðsstjórnar hverju sinni.
Ísland hefur fullt aðgengi að styrkjum sjóðanna sem hér verður fjallað um sem eitt af þátttökuríkjum Norrænu ráðherranefndarinnar. Íslensk fyrirtæki, stofnanir og aðrir lögaðilar tekið þátt í verkefnum og sótt um styrki á jafnræðisgrundvelli við aðila frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Aðgengi er háð ákveðnum grunnreglum sem einkenna starfsemi hvers sjóðs fyrir sig en yfirleitt er gerð krafa um að þátttakendur séu frá að minnsta kosti þremur norrænum löndum. Verkefni njóta almennt aukinna gæða og styrkleika þegar þau byggja á samstarfi nokkurra ríkja.