Fara í aðalefni

Samband íslenskra sveitarfélaga tekur þátt í verkefninu LIFE Icewater, sem er viðamikið sex ára samstarfsverkefni 21 aðila sem hófst árið 2024 og er styrkt af LIFE áætlun ESB. Verkefnið miða að því að bæta vatnsgæði um allt land og hámarka ábata samfélagsins af vatnstengdum framkvæmdum og viðburðum. Styrkurinn er í heildina um 3,5 milljarðar króna og er ætlaður til að vinna að fjölbreyttum verkefnum til að flýta fyrir og bæta innleiðingu vatnaáætlunar á Íslandi.  Verkefninu er ætlað að auka þekkingu á notkun, eiginleikum og ástandi vatns á Íslandi, að tryggja fumlausa og samhæfða stjórnsýslu í vatnamálum, bæta vatnsgæði, svo sem með úrbótum á fráveitu og hreinsun fráveituvatns, og að fræða almenning og hagaðila um mikilvægi vatns. LIFE ICEWATER verkefnið er vettvangur umfangsmikils, markvisstu og þverfaglegu samstarfs þvert á stjórnsýslustig og geira. Verkefið skapar tækifæri til nýsköpunar í bæði stjórnsýslu og rekstri veitna.

Sveitarfélög á Íslandi njóta góðs af verkefninu með ýmsum hætti. Til að byrja með verður almenn þekking á stöðu vatnamála betri (auknar rannsóknir og eftirlit) og regluverk verður skýrt og einfaldað. Auk þess koma þónokkur sveitarfélög að verkefninu með beinum hætti og munu þau deila reynslu sinni með öðrum sveitarfélögum sem geta notið góðs af í sínum verkefnum. Samband íslenskra sveitarfélaga tekur þátt í Icewater verkefninu með margvíslegum hætti en hefur í grunninn það hlutverk að reyna að tryggja að allt sem lærist í verkefninu skili sér með aðgengilegum hætti til þeirra sveitarfélaga sem ekki hljóta styrk í gegnum verkefnið svo þau geti sem flest, ef ekki öll, notið ávinnings af verkefninu. Með það fyrir augum að miðla þessari þekkingu verður  sett upp síðan Straumar sem mun þjóna sem miðlægur og aðgengilegur gagnabanki fyrir sveitarfélög til að sækja sér leiðbeiningar og fræðslu í vatnamálum og mun einnig nýtast sem vettvangur fyrir sveitarfélögin sem taka þátt í Icewater til að deila því sem mun lærast í verkefninu með öðrum sveitarfélögum.

Umhverfis- og orkustofnun leiðir verkefnið en samstarfsaðilar, auk Sambandsins, eru Eimur, Gefn, Grundarfjarðarbær, Hafrannsóknastofnun, Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Hveragerðisbær, Isavia, Ísafjarðarbær, Kópavogsbær, Matvælastofnun, Náttúrufræðistofnun, Náttúruminjasafn Íslands, Orkuveita Húsavíkur, Orkuveita Reykjavíkur, Reykjavíkurborg, Ríkisútvarpið, umhverfis,- orku og loftslagsráðuneyti og Veðurstofa Íslands.

Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu verkefnisins.