Evrópskir styrkir
Á vegum Evrópusambandsins eru reknar viðamiklar samstarfsáætlanir sem miða að því að auka félagslegan og efnahagslegan jöfnuð innan aðildarlandanna og styðja við framþróun og hagvöxt. Markmið áætlananna er m.a. að veita fjárhagslegan stuðning til rannsókna, nýsköpunar og innleiðingar sem sérstaklega styðja við samkeppnishæfni Evrópu. Samstarfsáætlanirnar styrkja opinbera aðila, sveitarfélög, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga. Samstarfsáætlanirnar hafa mismunandi markmið og markhópa, margvíslegar undiráætlanir og ólíkar gerðir styrkja.
Ísland hefur tekið virkan þátt í samstarfsáætlunum Evrópusambandsins frá árinu 1994 þegar samningurinn um evrópska efnahagssvæðið tók formlega gildi. Mikil tækifæri geta falist í þátttöku í þessum samstarfsáætlunum. Ávinningurinn er faglegur, félagslegur og ekki síst fjárhagslegur.
Evrópustyrkir snúast um að fjármagna vel skilgreind verkefni en ekki dags-daglega starfsemi. Mismunandi styrkir eru í boði fyrir mismunandi aðila og því er lykilatriði að átta sig á snemma hvaða gerð styrkja hentar best hvaða hópi. Byggðamál eru ekki hluti af EES samningnum og því standa sjóðir þeim tengdum íslenskum sveitarfélögum ekki til boða. Það er þó hægt að líta til margra nnarra áætlana og um að gera að kanna möguleikana.
Ísland hefur í dag aðgang að 12 áætlunum ESB í gegnum EES samninginn. EFTA ríkin semja sérstaklega um aðkomu sína að þeim fyrir hvert 7 ára áætlunartímabil og greiðir hvert ríki fyrir aðgang að þeim áætlunum sem það tekur þátt í. Árangur íslenskra aðila hefur hingað til verið afar góður og er árangurshlutfall íslenskra umsókna hátt og stenst vel samanburð við önnur ríki og ætíð hefur þátttakan skilað hærri fjárhæðum til Íslands en farið hafa í að greiða fyrir aðgang. Beinn fjárhagslegur ávinningur hefur verið meira en 50% hærri en skuldbindingar (35-40 milljarðar) það sem af er yfirstandandi áætlunartímabili (2021-2027). Umfram fjárhagslegan ávinning hefur verið mikill óáþreifanlegur ávinningur í þekkingu, samstarfi og innviðauppbyggingu.