Fara í aðalefni

Stafræn vegferð

Vef­kaffi - DAM! Hvar er þessi mynd?

Dalvíkurbyggð segir frá reynslu sinni af DAM kerfi Data Dwell og innleiðingu lausnarinnar hjá sveitarfélaginu en lausnin gerir sveitarfélaginu kleift að halda utan um allar myndir og myndbönd á einum stað. Við fáum að heyra bæði frá kerfisstjóra Dalvíkurbyggðar og forstöðumann safna sveitarfélagsins sem nálgast lausnina með ólíkar þarfir og áherslur.

Dagsetning: 17. nóvember 2026

Staðsetning: Stafrænt

Tími: Kl. 10:00

Skrá á viðburð

Bjarni Jóhann Valdimarsson, kerfisstjóri Dalvíkurbyggðar, og Björk Hólm Þorsteinsdóttir, forstöðumaður safna Dalvíkurbyggðar segja frá reynslu þeirra og innleiðingu á DAM (Digital Asset Management) kerfi Data Dwell þar sem sveitarfélagið getur á einum stað haldið utan um allar myndir og myndbönd, skjalað, aðgangsstýrt og deilt að vild. Dalvíkurbyggð er eitt af nokkrum sveitarfélögum sem hafa innleitt lausnina, en hafa innleitt lausnina á nokkrum starfsviðum sveitarfélagsins.

Vefkaffið verður haldið á Teams þann 17. nóvember 2026 kl. 10:00.

Vefkaffi eru stafrænar spjallstofur sem haldnar eru mánaðarlega yfir vetrarmánuðina, þar sem kynnt eru hin ýmsu verkefni tengd stafrænni umbreytingu sveitarfélaganna. Öll Vefkaffi eru tekin upp og birt undir viðeigandi viðburði að honum loknum.