Boðað er til stofnfundar Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga miðvikudaginn 7. október kl. 15:00–16:00 í sal á 2. hæð á Hilton Reykjavík.
Sveitarfélög sem hafa verulega beina hagsmuni af landbúnaði geta gerst stofnaðilar að samtökunum. Við mat á því skal meðal annars líta til umfangs landbúnaðarstarfsemi innan sveitarfélagsins, hlutfalls starfa í landbúnaði og tengdum greinum, sem og annarra þátta sem sýna fram á verulega hagsmuni sveitarfélagsins af málefnum landbúnaðar.
Smelltu hér til að skrá þig á fundinn.
Dagskrá
- Tilgangur samtakanna og almennar umræður
- Samþykktir lagðar fram til samþykktar
- Fjárhagsáætlun, árgjöld og þóknun stjórnar
- Kosning formanns stjórnar, annarra stjórnarmanna (fjögurra stjórnarmanna) og varastjórnar (þriggja varamanna) til tveggja ára
- Kosning tveggja skoðunarmanna
- Ályktun lögð fram til umræðu og samþykktar
- Önnur mál
Athygli er vakin á því að sveitarfélög sem verða stofnaðilar að samtökunum þurfa fyrir árslok 2026 að senda starfsmanni samtakanna staðfestingu á því að sveitarstjórn hafi samþykkt aðild sveitarfélagsins að Samtökum landbúnaðarsveitarfélaga.
Þeir sem hafa áhuga á að gerast stofnaðilar og/eða gefa kost á sér til setu í stjórn samtakanna eru hvattir til að senda tölvupóst á bryndis@samband.is.