Fara í aðalefni

Skipulagsmál

Skipu­lags­dag­ur­inn 2026

Skipulagsdagurinn 2026 fer fram þann 5. nóvember, kl 9-16 í Háteig á Grandhótel og í beinu streymi. Fundarstjóri verður Bergsteinn Sigurðsson.

Dagsetning: 5. nóvember 2026

Staðsetning: Grand Hótel í Reykjavík

Tími: Kl. 11:25

Skrá á viðburð

Dagskrá dagsins skiptist niður í fjóra hluta:

  • Samþætting skipulagsmála og húsnæðisáætlana
  • Staða og þróun skipulagsmála og landnýtingar
  • Aðlögun byggðar að loftslagsbreytingum
  • Menningarlandslag, ásýnd byggðar í dreifbýli og þéttbýli

 

Í lok hvers hluta verða pallborðsumræður og tekið við spurningum úr sal. Fjölbreyttur hópur frummælenda og sérfræðinga mun koma að pallborðsumræðum.

Fagfólk, kjörnir fulltrúar og allt áhugafólk um skipulag er hvatt til að taka daginn frá. Þátttökugjald er 10.000 krónur en innifalin er morgunhressing, hádegisverður og síðdegishressing. Þátttökugjald fyrir nema er 5.000 krónur.  

 

Nánari dagskrá verður auglýst á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þegar nær dregur.