29. apríl 2026
Kl. 16:00

Boðað er til aukaaðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga, sem haldinn verður í fjarfundi miðvikudaginn 29. apríl kl. 16:00.
Dagskrá aukaaðalfundar er eftirfarandi:
- Breyting á samþykktum – meðfylgjandi er tillaga stjórnar að breytingum á samþykktum.
- Kosning kjörnefndar ef breytingar á samþykktum verða samþykktar. Kjósa skal þrjá í kjörnefnd og þrjá til vara.
Atkvæði aðildarsveitarfélags – Á aukaaðalfundi fer hvert aðildarsveitarfélag með 1 atkvæði. Í þeim tilvikum þar sem þátttakendur frá einu sveitarfélagi eru fleiri en einn þarf að liggja fyrir hver þeirra fer með atkvæði sveitarfélagsins.
Í skráningu þarf að koma fram hvort viðkomandi fari með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.
Tengill á fundinn verður sendur til þeirra er skrá sig á aukaaðalfundinn þegar nær dregur.