Vinnum gullið – ný stefna í afreksíþróttum á Íslandi

Mennta- og barnamálaráðuneytið, í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, ÍSÍ, og UMFÍ boðar til ráðstefnunnar Vinnum gullið – ný stefna í afreksíþróttum á Íslandi mánudaginn 20. nóvember í Silfurbergi í Hörpu og í streymi. Á ráðstefnunni verða kynnt áform um eflingu afreksíþróttastarfs á Íslandi. Fulltrúar íþróttahreyfingarinnar og aðrir gestir ráðstefnunnar munu koma að mótun tillagnanna.

Hvernig skörum við fram úr?
Hvert er besta fyrirkomulagið?
Hvað getum við lært af öðrum?
Hvernig styðjum við best við afreksíþróttafólk?

Þetta eru á meðal þeirra spurninga sem starfshópur mennta- og barnamálaráðherra um stöðu og réttindi afreksíþróttafólks vinnur nú að því að svara og verða til umræðu á ráðstefnunni. Vésteinn Hafsteinsson, afreksíþróttamaður, -þjálfari, nýr afreksstjóri ÍSÍ og sérfræðingur hjá ráðuneytinu, leiðir starfshópinn.

Áform um stóreflingu afreksíþróttastarfs hérlendis með bættri aðstöðu, stuðningi og réttindum fyrir afreksíþróttafólk verða kynnt á ráðstefnunni. Fjallað verður um hvernig skapa megi umgjörð fyrir unga íþróttaiðkendur til að vaxa og dafna, jafnt í þéttbýli og dreifbýli. Þá mun þjóðþekkt afreksíþróttafólk koma sínum áherslum á framfæri og verður aðkoma sveitarfélaga og atvinnulífsins tekin fyrir.

Dagskrá ráðstefnunnar.

Ráðstefnan er öllum opin. Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig. Opið er fyrir skráningar til og með 16. nóvember.

Mennta- og barnamálaráðuneytið hvetur öll áhugasöm um árangur og afreksstarf til að mæta.