Samtal um græna styrki á Ísafirði

Rannís, Samband íslenskra sveitarfélaga og Vestfjarðarstofa standa fyrir opnum fundi um græna styrki á Ísafirði þann 27. nóvember næstkomandi.

Á fundinum verður fjallað um sóknartækifæri fyrir íslenska aðila í Evrópuáætlanir á sviði umhverfis-, orku- og loftslagsmála, og þá þjónustu sem umsækjendum stendur til boða.

Þá verður einnig fjallað sérstaklega um verkefnið RECET, en það hlaut nýverið styrk úr LIFE, umhverfis- og loftslagsáætlun Evrópusambandsins. RECET er samstarfsverkefni fimm landa með Ísland í fararbroddi og eru það Íslensk nýorka og Eimur sem leiða verkefnið hér á landi með þátttöku Vestfjarðastofu og SSNE.

Dagskrá

  • Almennt um Evrópustyrki og aðkomu Íslands að þeim
  • Horizon Europe – Rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB​
  • LIFE – Umhverfis- og loftslagsáætlun ESB​
  • European City Facility – Styrkir til að útbúa fjárfestingaráætlanir fyrir sveitarfélög ​vegna orkuskipta
  • RECET – Vegferðin sem leiddi til styrks, staðan í dag og næstu skref
  • Samband íslenskra sveitarfélaga í Evrópuverkefnum – Ólíkar leiðir ​til samstarfs og þátttöku
  • Þjónusta Rannís og fyrstu skrefin í sjóðasókn ​

Upplýsingar og skráning

Tímasetning: Mánudagur 27. nóvember kl. 16:00-17:00

Staðsetning: Vestfjarðarstofa, Árnagata 2-4, 400 Ísafjörður

Vinsamlegast skráið þátttöku hér

Boðið verður upp á léttar veitingar.