Pælt í Pisa – Greining á stöðu læsis á náttúruvísindi

Pælt í PISA - Greining á stöðu læsis á náttúruvísindi er heiti fjórða fundar af sjö þar sem markmiðið er að kafa dýpra í niðurstöður PISA-rannsóknarinnar 2022. Fundurinn fer fram 5. mars kl. 15-16:30 í Stakkahlíð. Hægt er að fylgjast með fundinum á Zoom.

Á þessum þriðja fundi verður staða læsis á náttúruvísindi greind. 

Guðmundur Bjarki Þorgrímsson, sérfræðingur við Menntamálastofnun, gefur yfirlit yfir niðurstöður PISA 2022 á stöðu læsis á náttúruvísindi og Haukur Arason, dósent og Edda Elísabet Magnúsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands rýna dýpra í niðurstöður. Umræður verða í kjölfarið. Fundarstjóri og stjórnandi umræðna: Freyja Birgisdóttir, sérfræðingur hjá Menntamálastofnun.

Alls verða haldnir sjö fundir á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Mennta- og barnamálaráðuneytis, Menntamálastofnun, Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla.

Verið öll velkomin meðan húsrúm leyfir. Aðgangur ókeypis.