Nýtt fasteignamat 2024

HMS boðar til opins kynningarfundar í HMS, Borgartúni 21, miðvikudaginn 31. maí kl.10:30.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun tók við verkefnum fasteignaskrár í júlí 2022. HMS kynnir nú í fyrsta skipti endurmat fasteigna. Fasteignamat fellur vel að öðrum verkefnum HMS svo sem framkvæmd húsnæðisáætlana, upplýsinga um mannvirkjauppbyggingu og greininga á húsnæðismarkaði.

Dagskrá

10:30-10:35 Fundarsetning.

10:35-10:50 Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fasteignasviðs HMS á Akureyri - Nýtt fasteignamat fyrir 2024.

10:50-11:05 Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga - Húsnæðisþörf og staða sveitarfélaga.

11:05-11:20 Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans - Staða lántakenda.

11:20-11:30 Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri lánasviðs HMS - Húsnæðis-uppbygging og áætlanir um frekari uppbyggingu.

Fundarstjóri: Brynja Þorgeirsdóttir. Fundinum verður einnig streymt beint á hms.is/streymi.

Nánar á vef HMS