Nýsköpun í opinberum sparnaði

Nýsköpunardagur hins opinbera 2023 fer fram þriðjudaginn 23. maí kl 9-13 í Veröld – hús Vigdísar (Auðarsalur) og í streymi. Þema dagsins er: „Nýsköpun í opinberum sparnaði“

Markmið Nýsköpunardagsins er að stuðla að auknum opinberum innkaupum á nýsköpun með sérstakri áherslu á lausnir sem skapa sparnað í opinberum rekstri.

Sprota- og nýskapandi fyrirtæki verða í aðalhlutverki með kynningum á nýjum og spennandi sparnaðarlausnum ásamt mikilvægum fróðleik um opinber innkaup á nýsköpun.

Í kjölfar kynninga gefst færi á tengslamyndun milli fyrirtækja og opinberra aðila til að ræða leiðir að bættri þjónustu og aukinni skilvirkni í opinberum rekstri.

Dagskrá

  • Opnunarávarp
    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Sparnaðarlausnir            
    20 sprota- og nýsköpunarfyrirtæki - 5 mínútna kynningar
  • Tengslamyndun og veitingar

Léttar veitingar og kaffi fyrir þá sem mæta snemma og kaffihlé kl 10:15

Nánar á opinbernyskopun.is

Skráning fer fram hér