– komum á samræmdum merkingum í úrgangsmálum!
FENÚR býður til fundar um bætta úrgangsstjórnun á Íslandi. Fundurinn fer fram í fjarfundi þann 11. nóvember 2020, kl. 13:00-14:30
Dagskrá:
13:00 | Ávarp Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra |
13:15 | Nordic pictograms Anna-Carin Gripwall, Avfall Sverige |
13:40 | Tillögur að íslenskri útgáfu af samræmdum norrænum úrgangsmerkingum Eygerður Margrétardóttir, formaður FENÚR og verkefnisstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga |
14:00 | Fyrirspurnir og umræður |
14:30 | Fundarslit |
Fundarstjóri er Gunnar Dofri Ólafsson, sérfræðingur í samskiptum og samfélagsvirkni hjá Sorpu. |
Samræmdar merkingar í úrgangsmálum er verkefni sem hefur hlotið styrk frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Verkefnið byggir á dönskum úrgangsmerkingum og norrænu samstarfi um samræmdar merkingar í úrgangsmálum. Markmið þess er að styðja við bætta úrgangsstjórnun á landinu.
Aðeins félagar í Fenúr sem greitt hafa félagsgjöld geta setið fundinn.
Skráning á fenur@fenur.is.