Málþing um umhverfisvænni mötuneyti

Sambandið vekur athygli sveitarfélaga á málþingi Umhverfisstofnunar um umhverfisvænni mötuneyti sem fram fer á Teams þriðjudaginn 10. maí nk.

Í tilefni af nýútgefnum leiðbeiningum fyrir mötuneyti um minni umbúðanotkun og matarsóun boðar Umhverfisstofnun til málþings um umhverfisvænni mötuneyti. Málþinginu verður streymt í gegnum Teams þann 10. maí kl. 14:00 og snertir á fjölmörgum umhverfisþáttum mötuneytisreksturs.

Hlekkur á málþingið.

Umhverfisstofnun hefur fengið til liðs við okkur góðan hóp frummælenda og við hvetjum alla sem koma að rekstri mötuneyta á einn eða annan hátt til að nýta tækifærið, hlýða á erindi og spyrja spurninga að kynningum loknum. 

Anna Sigríður Ólafsdóttir, doktor í næringarfræði og prófessor við deild Heilsueflingar íþrótta og tómstunda á Menntavísindasviði HÍ, mun fjalla um heilsusamlegt mataræði sem er hagstætt umhverfinu. Sífellt meiri áhersla er lögð á að umhverfissjónarmið og heilsusamlegt fæði fari saman og hvaða skref er æskilegt að taka. Í erindinu verður horft til nýrra niðurstaðna á mataræði Íslendinga, rannsókna á mataræði í skólamötuneytum og farið yfir þróun ráðlegginga sem færast stöðugt meira í átt að umhverfissjónarmiðum, þar á meðal norrænar ráðleggingar, vistkerafæði og vegan valkostir. 

Við fáum að heyra frá sérfræðingi Matvælaráðuneytisins, en Sigurður Eyþórsson mun m.a. kynna innkaupastefnu matvæla fyrir ríkisaðila sem miðar að því að auka áherslu á sjálfbærni og að sporna gegn neikvæðum umhverfis- og loftslagsáhrifum af matvælaframleiðslu og umsýslu matar.

Ríkharður Gústavsson, deildarstjóri og yfirmatreiðslumeistari Íslandsbanka og Ásgeir Ólafsson, sérfræðingur rekstrarþjónustu Íslandsbanka,  munu fjalla um reynslu sína í því að reka Svansvottað mötuneyti, en mötuneyti Íslandsbanka hlaut Svansvottun í byrjun síðasta árs. Við Svansvottun veitingareksturs er m.a. lögð áhersla á að lágmarka vatnsnotkun og innleiða orkusparandi aðgerðir, litið er til sjálfbærni og kolefnisspors matvæla, gripið er til markvissra aðgerða til að draga úr matarsóun, takmarka umbúðanotkun og einnota vörur og úrgangur er flokkaður. 

Síðast en ekki síst munum við heyra frá Kolbrúnu Ýri Bjarnadóttur, íslenskukennara og meðlims í Umhverfisnefnd Menntaskólans á Akureyri. MA tekur þátt í Grænum skrefum í ríkisrekstri þar sem horft er til þeirra neikvæðu umhverfisáhrifa sem rekstur mötuneyta getur haft í för með sér. Ein árangursríkasta leiðin til að draga úr losun tengdri matvælum er að auka hlut matvæla úr plönturíkinu í fæðu okkar. Það hefur mötuneyti MA svo sannarlega gert, en þar er boðið upp á grænmetis eða grænkerafæði alla daga. Kolbrún Ýrr mun ræða hvernig viðtökur hafa verið meðal starfsfólks og reynslu sína sem neytandi í grænmetismiðuðu mötuneyti. 

Teymi hringrásarhagkerfis Umhverfisstofnunar stendur fyrir viðburðinum og er honum ætlað að auðvelda mötuneytisþjónustum við að draga úr matarsóun og umbúðanotkun. Athygli er vakin á því að þrátt fyrir að málþingið miði fyrst og fremst að mötuneytum getur það einnig hentað sveitarfélögum sem reka skólamötuneyti, veitingastöðum, hótelum og öðrum sem koma að veitingaþjónustu. 

Tengd skjöl: