Kynningarfundur um fráveitur

Samorka í samstarfi við Umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga halda kynningarfund fyrir fráveitur þriðjudaginn 23. nóvember.

Upptaka frá fundinum.

Fundurinn verður í fjarfundi (Teams) en sendur út frá Borgartúni 35. Fundurinn hefst kl. 10:30 og gert ráð fyrir að hann standi í rúmlega klukkustund. Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn hér að neðan.

Dagskrá

  1. Tækifæri og áskoranir í uppbyggingu og rekstri fráveitukerfa – reynslusögur o.fl.  –
    Fjóla Jóhannesdóttir formaður fráveitufagráðs Samorku og sérfræðingur hjá Veitum
  1. Tæknilegur undirbúningur fráveituframkvæmda -
    Reynir Sævarsson fyrirliði umhverfisteymis EFLU
  1. Styrkir til fráveituframkvæmda – upprifjun á fyrirkomulagi styrkveitinga, umsóknarferlinu, gagnaskilum o.s.frv.
    Styrkveitingar næsta árs o.fl. – Hafsteinn Pálsson frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu
  1. Fyrirspurnir og umræður