Kynning á styrkjum vegna fjárfestingar í orkuskiptum

Fimmtudaginn 11. janúar kl. 10:30-12:00 efnir Samband íslenskra sveitarfélaga til kynningarfundar á Teams um European City Facility verkefnið sem fjármagnað er af LIFE áætlun ESB. Sveitarfélögum býðst að sækja um styrk til verkefna sem miða að því að þróa fjárfestingaráætlanir í þágu orkuskipta og aukinnar orkunýtingar. Upphæð styrkja er níu milljón krónur, auk þess sem styrkþegar fá sérhæfðan stuðning sérfræðinga við verkefnið.

Styrknum er ætlað styðja við gerð fjárfestingaáætlunar á sviði orkuskipta, orkunýtni og loftslagsmála sem er sérsniðin eftir hverjum umsækjenda. Fyrri styrkþegar hafa nýtt fjármagnið til fjölbreyttra aðgerða, meðal annars við gerð hagkvæmniathugana, markaðsrannsókna, hagaðilagreiningar og mótun aðgerða til að auka samstarf við hagaðila, greiningar á lagaumhverfi, efnahagslegu umhverfi og fjármálum. Styrkþegar geta ráðist í ýmsar aðgerðir en skilyrði er að þær þjóni því að miða að þróun fjárfestingaáætlunar á sviði orkuskipta og -nýtni.

Á fundinum verður farið yfir styrkina og umsóknarferlið og er nauðsynlegt að skrá sig á fundinn.

Frekari upplýsingar er að finna hér: https://www.eucityfacility.eu/5th-call