Kófið og menntakerfið: Áskoranir og tækifæri

Boðað er til rafræns málþings um nám og kennslu á tímum samkomubanns vegna Covid-19 heimsfaraldursins. Að málþinginu standa mennta- og menningarmálaráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, Menntavísindasvið Háskóla Íslands og Kennarasamband Íslands. Málþingið er hið fyrsta í röð viðburða sem haldnir verða haustið 2020 til þess að ræða áskoranir og tækifæri í menntakerfinu á tímum heimsfaraldursins.

Málþingið fer fram á netinu og verður streymt af vef Stjórnarráðsins. Það hefst kl. 15:00 og stendur yfir til kl. 16:30.

Á fyrsta málþinginu verða kynntar frumniðurstöður rafrænna kannana á framkvæmd skóla- og frístundastarfs á tímum samkomubanns vorið 2020.

Dagskrá málþingsins:

Setning: Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra

  1. Menntakerfið á tímum COVID; spurningakannanir Menntavísindasviðs Háskóla Íslands vorið 2020.
    Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs.
  2. Áhrif samkomubanns á leikskólastarf, leik barna og hlutverk kennara.
    Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
  3. Reynsla þroskaþjálfa í grunn- og framhaldsskólum af áhrifum samkomubanns á þjónustu við nemendur.
    Ruth Jörgensdóttir Rauterberg, aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
  4. Áhrif fyrstu bylgju Covid á grunnskólastarfið og samskipti við foreldra.
    Kristín Jónsdóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
  5. Reynsla stjórnenda félagsmiðstöðva og frístundaheimila af skipulagi frístundastarfs á tímum samkomubanns.
    Ársæll Már Arnarsson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
  6. Framhaldsskólinn í fyrstu bylgju Covid: Áskoranir og tækifæri.
    Guðrún Ragnarsdóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
  7. Fjarkennsla og stafræn tækni á tímum Covid.
    Sólveig Jakobsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
  8. Viðbrögð skólastjórnenda leik-, grunn- og framhaldsskóla
    • Kristinn Þorsteinsson, skólameistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ,
    • Hulda Jóhannsdóttir, leikskólastjóri, leikskólanum Króki, Grindavík
    • Kristín Jóhannesdóttir, skólastjóri Giljaskóla, Akureyri.

Fundarstjórn og lokaorð: Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ

Málþingið er öllum opið og verður streymt á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis.