Hlutdeild Úrvinnslusjóðs í kostnaði sveitarfélaga

Samband íslenskra sveitarfélaga efnir til opins fjarfundar undir yfirskriftinni Hlutdeild Úrvinnslusjóðs í kostnaði sveitarfélaga miðvikudaginn 15. febrúar kl. 10:00 til 11:30. Fundurinn er hluti af fundarröð sambandsins undir átakinu Samtaka um hringrásarhagkerfi.

Tilefnið eru breytingar á lögum um úrvinnslugjald og fleiri lögum vegna innleiðingar hringrásarhagkerfis sem innleiddar voru í íslenskt regluverk í júní 2021 og komu til framkvæmda um síðustu áramót. Söfnunarkerfi sveitarfélaga taka við umbúðum og vörum sem bera úrvinnslugjald og samkvæmt lögunum skal Úrvinnslusjóður fjármagna og tryggja meðhöndlun vara og umbúða sem bera úrvinnslugjald eftir að þær verða að úrgangi. Fjármögnunin skal þ.m.t. standa straum af kostnaði við sérstaka söfnun og aðra söfnun. Ábyrgðin nær einnig til fræðslu og hreinsunar á víðavangi á ákveðnum vörum og umbúðum sem bera úrvinnslugjald.

Smelltu hér til að sjá upptöku af fundinum: https://vimeo.com/799433327

Dagskrá:

  1. Opnun: Freyr Eyjólfsson fundarstjóri.
  2. Ávarp. Magnús Jóhannesson formaður Úrvinnslusjóðs.
  3. Hlutdeild Úrvinnslusjóðs í kostnaði sveitarfélaga vegna meðhöndlunar úrgangs. Ólafur Kjartansson, framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs.
  4. Heildarkostnaður sveitarfélaga vegna meðhöndlunar úrgangs. Sigurður Ármann Snævarr, sviðsstjóri hag- og upplýsingasvið hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
  5. Pallborð um kostnað sveitarfélaga vegna innleiðingar hringrásarhagkerfis.
  6. Umræður .