Föstudagsmálstofa fjármálaráðstefnu II. hluti

Galdurinn við góða fjárhagsáætlun  

Föstudaginn 4. nóvember, kl. 09:00 –10:30, heldur fjármálaráðstefna sveitarfélaga áfram. Að þessu sinni verður leitast við að svara spurningum um góða fjárhagsáætlun. Þau sem sitja fyrir svörum eru:

  • Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri Stykkishólms og Helgafellssveitar
  • Kristín Baldvinsdóttir, forstöðumaður áætlunargerðar Akureyrarbæjar og
  • Erik Tryggvi Striz Bjarnason, skrifstofustjóri Áætlana- og uppgjörsskrifstofu Reykjavíkurborgar

Málstofustjóri verður: Jón Hrói Finnsson, sveitarstjóri Þingeyjarsveitar

Eftirfarandi spurningum hefur verið varpað fram:

  • Hvaða aðferð er notuð við áætlunargerðina?
  • Hvernig hefst vinnan við fjárhagsáætlun? (Fyrstu skrefin)
  • Hvaða sjónarmiða er leitað og hvernig?
  • Hvernig er áætlað fyrir óvissuþáttum?