Byggðaráðstefnan 2021 – Menntun án staðsetningar?

Byggðaráðstefnan 2021 verður haldin dagana 26. og 27. október n.k. á Hótel Kötlu í Mýrdal. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Menntun án staðsetningar?“ og að henni standa Byggðastofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), Háskólafélag Suðurlands og Mýrdalshreppur.

Bein útsending fer fram á Facebook.

Tilgangur ráðstefnunnar er að tengja saman fræðilega og hagnýta þekkingu á byggðaþróun með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri þróun byggðar um allt land. Ráðstefnan er vettvangur fólks úr háskólum, stjórnsýslu, sveitastjórnum og annarra sem áhuga hafa á byggðaþróun og menntamálum. Leitast verður við að ná fram ólíkum sjónarmiðum þeirra sem vinna að rannsóknum og stefnumótun á vettvangi byggðamála með áherslu á menntamál.

Dagskrá byggðaráðstefnunnar (pdf-skjal)

Skráning á ráðstefnuna er á netfanginu katla@keahotels.is. Í skráningunni komi fram nafn, heimilisfang, stofnun/fyrirtæki og hvort óskað er eftir gistingu. Slóð á greiðslu á ráðstefnugjaldi og gistingu á Hótel Kötlu verður send þátttakendum í tölvupósti í framhaldinu.

Ráðstefnugjald er kr. 15.000, innifalið eru veitingar, ráðstefnugögn og fyrirtækjaheimsóknir.  

Skráningarfrestur er til og með föstudagsins 22. október.  

Ráðstefnunni verður streymt og slóðin send þátttakendum er nær dregur.

Nánar á vef Byggðastofnunar.